Færsluflokkur: Dægurmál
8.12.2008 | 14:13
Þakka fyrir mig...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2008 | 10:20
Það er spurnin....
Ég kann einhvern veginn ekkert sérstaklega vel við mig hér á mogganum
Ég er að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fara aftur á centralinn eða bara hætta þessu bloggi. Þetta er nú dáldið svona twothousandandfive Hafið þið einhverja skoðun á þessu?
Á ég að hætta að blogga??
Á ég að fara aftur á blog.central.is/jodisskula??
Á ég að gefa moggablogginu meiri sjens??
Ég veit ekki einu sinni hvort einhver sé að lesa þessa vitleysu ennþá
Látiði nu í ykkur heyra!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.11.2008 | 15:08
jæja
Búin í prófum, ups and downs... Núna tekur við rólegri tími og bið eftir niðurstöðum. Ég hef lifað á poppi og nammi alla prófatörnina og nú er komið að detoxi. Þegar ég steig á vigtina í morgun stóð "To be continued" á vigtinni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.11.2008 | 14:35
Til hamingju með daginn
Hví skyldi ég ei vakna við
og verki tömu sinna
veit eg að stuttri stundarbið
stefin mín öngvir finna
en fyrst þú gast svo góðs til mín,
get eg þá nema minnst til þín,
ættprýði mín og minna!
Dagur íslenskrar tungu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 19:35
S.O.S
Jæja þá er það loka spretturinn
Þessi vika og svo fyrsta lokaprófið á mánudaginn. Jæks! Magnús er búinn að vera veikur síðan á fimmtudag, með í eyrunum og barkabólgu og kominn á pensilín. Við reynum nú að vera á vöktum með hann og læra þess utan. Hún systir mín kom svo í heimsókn og verður í nokkra daga. Hún er látin sinna öllum leiðinlegum húsverkum og svo eldri börnunum sem þurfa nú talsvert aðhald á þessum tímapunkti í skólanum Ritgerðir úr þriðja tákninu, skyndipróf í hinum og þessum fögum og svo stuttmyndagerð í gangi þessa dagana hjá þeim.
Mesti ofsakvíðinn hjá mér núna er vinnurétturinn sem hljómaði svo vel í upphafi annar. Nú er raunveruleikinn hins vegar skollinn á og felst hann í 20 spurningum sem þarf að kunna utan bókar, því svo dregur maður 1. spurningu af þessum 20 og svarar í munnlegu prófi næsta fimmtudag. Þegar búið var að svara spurningunum 20 reyndust það 80 bls Alþjóðavinnumálastofnunin, Evrópureglur á sviði vinnuréttar, staða og hlutverk sáttasemjara?!?!?! þetta er algjört hell
Ég er allavega að fá frussuskít yfir öllu þessu og mun ekki verða mönnum sinnandi næstu 2 vikur eða svo. En þá skal líka jólað feitt út alla aðventuna! hoj
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2008 | 00:22
Hörmulegt
Þetta held ég að séu verstu kreppufréttir sem ég hef fengið frá því að allt saman hófst. Með hruni fyrirtækisins missir fjöldi fólks atvinnu sína í minni heimabyggð og þar á meðal bróðir minn sem hefur fyrir stórri fjölskyldu að sjá en hann hefur árum saman unnið hjá Malarvinnslunni.
Við erum svo sannarlega ekki búin að sjá hvernig þetta endar, hverjir halda sjó og hverjir fara í þrot. Fyrirtæki og einstaklingar munu verða gjaldþrota, gömul og gróin fyrirtæki. Vinir og ættingjar. Allt sem var, fer og allt sem átti að verða, ja verður bara alls ekki.
Einu sinni ákvað ég að byggja mér hús. Malarvinnslan og pabbi minn reistu það í sameiningu. Þegar ég horfði á það rísa, frá því að vera aðeins lyngivaxinn mói, sem varð að grunni sem svo varð að fokheldu húsi sem varð að lokum heimili mitt, gat ég ekki með nokkru móti vitað að innan örfárra ára yrði pabbi dáinn, húsið selt og malarvinnslan farin á hausinn. Allt virtist þetta þá jafn fjarstæðukennt.
Its the end of the world as we know it
Malarvinnslan gjaldþrota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.11.2008 | 12:15
Bwahahaha...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2008 | 11:33
God bless America?
Réttur samkynhneigðra takmarkaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2008 | 23:13
Hmmm?
Af hverju er lagið if i were a boy með Beyonce algjörlega uppáhaldslagið mitt í heiminum?? Skrítið að lessan sem ég er skuli algjörlega falla fyrir þessu lagi
Jæja aftur að lærdómnum
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.11.2008 | 09:38
Ekki öll von úti...
Aldrei fleiri útskrifaðir úr háskóla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)